Populismi.

Afhverju er það svo að allir flokkar ætla að stuðla að aukinni atvinnu í komandi kosningum!  Hvað hafa sveitastjórnir að gera með það og hvernig ætla þær að gera það? Mér finnst þetta vera populismi og ekkert annað! Það er fyrst og fremst ríkið sem getur ef það vill og kýs svo að stuðla að bættum efnahag í landinu og aukinni atvinnu. Sveitastjórnir hafa lítið með það að gera, ráða hvorki sköttum eða efnahagsumhverfinu og þurfa í raun að haga seglum eftir vind frá hinu háa alþingi. En þessu lofar XS og VG hér um bil allstaðar

Hvernig væri bara að lækka skatta svo fyrirtæki gætu starfað eðlilega, skatttekjur lækkuðu 2009 þrátt fyrir hækkun skatt % og þær eiga eftir að lækka líka 2010.

En héraðsstjórnir þessara sömu flokk og ráða öll hér á landi ætla samt að stuðla að aukinni atvinnu, ég spyr hvernig ætla þessir fulltrúar að gera það?


Öfgar í aðra átt?

Ætli Ísland sé að fara inn í tímabil ríkisafskipta þar sem stjórnmálamenn sjá um að útdeila gæðum þar sem markaðnum er ekki treystandi til þess? Öllu heldur sumum finnst markaðnum ekki treystandi til þessu.

Mér fannst á máli fjármálaráðherra og forsætisráðherra í vikunni að það verði reyndin, forsætisráðherra boðaði uppgjör jafnaðarmennskunar á Íslandi við Blair-isman. Blair-ismin gekk út á að tengja saman kraft markaðarins og stjórnsýsluna, "Quasi-market" heitir það víst. Er þessi stefna kennd við Tony nokkurn Blair fyrrum forsætisráðherra Breta. 

Við íslendingar höfum fylgt þessari leið með því að búa til ohf um ýmsar stofnanir ríkisins s.s RÚV ohf, Flugstoðir ohf og sitthvað fleira. Ég held að það er reyndar bara hið besta mál, betur má ef duga skal að mínu mati. Ef þetta verður til þess að meðhöndlun á almannafé verður betri og markvissari þá getur þetta ekki verið slæmt, eða hvað?

Fjármálaráðherra var auðvita samkvæmur sjálfum sér og sá einkavæðingunni allt til foráttu, auðvita voru gerð mistök í því ferli skýrslan tekur af öll tvímæli þar um. Einkavæðingin sjálf var samt ekki mistök, ríkið hefur ekkert að gera með að reka banka eða önnur fyrirtæki sem hægt er að reka á samkeppnisgrundvelli. 

En eftir þessar hugleiðingar mínar leikur mér forvitni á að vita hvort við eigum von á því að vinstrimenn fari til baka og stofnanavæði aftur RÚV og Flugstöðir? Það er ekki gott að segja og verður að koma í ljós. Það er hinsvegar búið að einkavæða bæði Arion og Íslandsbanka þar verður ekki aftur snúið, kröfuhafar eiga þá banka og þeir eru ekki ríkið. Spurning hvort Landsbankinn verður einkavæddur líka eða hvort ríkið reynir að halda í hann. Ég vona að hann verður settur á markað öllum til hagsbóta.

 


Hvernig væri að sýna samstöðu núna?

Hvernig væri að þjóðin myndi sýna smá samstöðu og segja upp áskrift af öllum fjölmiðlum í eigu Baugs eða tengdra aðila til að sýna andúð sýna í verki á ritskoðunum.

Að vísu væri ekki mikið eftir til að lesa og horfa á nema RÚV og gervihnattarsjónvarp, en er það ekki bara allt í góðu?

Svo getur fólk auðvita lesið bara héraðsfréttablöð einsog Bæjarins Besta á Ísafirði, Eyjafréttir og svona.

-gunni


mbl.is Fyrrum blaðamaður DV segist hafa sætt ritskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband